Thorvaldsensfélagið hefur styrkt minningarsjóð Bryndísar Klöru Birgisdóttur um 20 milljónir króna. Fjölskylda Bryndísar Klöru tóku tók við styrknum á jólafundi félagsins í desember.
Styrknum er ætlað til uppbyggingar Bryndísarhlíðar, sérstaks úrræðis fyrir börn og ungmenni sem eru þolendur ofbeldis. Minningarsjóðurinn mun leggja til húsnæði fyrir starfsemina en Landspítalinn mun sjá um rekstur úrræðisins.
„Þakklæti er okkur í stjórn minningarsjóðsins efst í huga. Þakklæti fyrir allan þann stuðning og þá styrki sem hafa borist síðastliðið ár. Við horfum full aðdáunar á starf samtaka eins og Thorvaldsensfélagsins og erum orðlaus yfir góðviljanum og gjafmildinni,“ er haft eftir Guðrúnu Ingu Sívertsen, formanni Minningarsjóðs Bryndísar Klöru.
Minningarsjóður Bryndísar Klöru var stofnaður haustið 2024 og hefur markmið að stuðla að öryggi og velferð barna í samfélaginu með því að styðja verkefni sem vinna gegn ofbeldi.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er verndari sjóðsins.


