Þann 19. nóvember sl. var Thorvaldsensfélagið 150 ára. Að því tilefni var vegleg afmælisveisla haldin í Nauthól.
Um 50 konur voru saman komnar til að halda upp á þessi merku tímamót og var ekkert sparað til að gera hátíðina sem veglegasta. Hver kona fékk fallega bleika rós og var veittur fordrykkur við komu.
Síðan var dagskrá með skemmtiatriðum og gjafa afhendingum til Kvennaathvarfsins. Þetta var sérlega vel heppnað kvöld og konurnar mjög ánægðar.







